Sá sem er alþýðlegastur vinnur

Svo byrjar fólk að rífast um það hvort Björk eða Bubbi séu meiri tónlistarmenn, merkari tónlistarmenn og niðurstaðan verður ákvarðandi fyrir það hvort sé mikilvægara baráttumál, náttúruvernd eða kjarabarátta. Sá sem er alþýðlegastur vinnur.

Þegar Egill Helgason kallar Bubba alþýðlegan, hljómar það eins og samheiti við plebbalegur - þ.e. Bubbi er alþýðlegur af því hann eyðir peningunum sínum í bensínháka og laxveiði. Af því hann skiptir um prinsipp eftir því sem hentar honum þann og þann daginn.

Annars hefur þetta verið tómt klúður. Á náttúruverndartónleikum Bjarkar var náttúruverndin öll falin (eins og rætt er hér) og á tónleikum Bubba gegn rasisma voru helstu ræðumenn öfgasinnaðir þjóðernissinnar (sjá hér og hér).

Loks vil ég mælast til þess að menn hætti að líta á hugtakið ‘alþýðu’ sem óbreytanlegt kitsj, einhverja afbökun á sovésku málverki af manni með hamar - en hefji hins vegar aðra hlið hugtaksins aftur til vegs og virðingar, sem legið hefur í dvala í einhverja áratugi, þ.e. að alþýða sé hugtak sem nái yfir alla launamenn sem njóta ekki sérkjara, hin valdalitlu tannhjól mannfélagsins, og sé ekki bundið við þjóðerni.

Leave a Comment