Íslendingar eiga orðið

Innflytjendur sem koma bara í þeim tilgangi að afla inn peningum og ala upp fjölskyldu, sem þeir gætu vel gert heima hjá sér, eru alltaf að verða fleiri og fleiri.Við Íslendingar erum lánsöm þjóð með ríka lýðræðisvitund. Við okkur blasa möguleikar og tækifæri sem ekki þættu sjálfsögð víða annars staðar í heiminum. Um þessi lífsgæði þurfum við að standa vörð.Við Íslendingar berum akkúrat enga virðingu fyrir því sem ætti í raun að vera okkur heilagt, okkar þjóðararfur. Fáninn, þjóðsöngurinn og sú samheldni sem ætti að endurspeglast í virðingu gangvart svona veigamiklum atriðum. Ég tók það einmitt fram í nýlegu viðtali við National Geographic tímaritið að ég væri nokkuð viss um að íslendingar væru töluvert metnaðarfyllri í þessum málum, þeir voru einmitt að pæla í hvað margir mundu standa uppúr á landinu miðað við fólksfjölda. Það þarf að fara rannsaka þetta íslenska gen almennilega þar sem við erum óvenjulega góð í öllu. Við getum kannski grætt á því að selja íslensk frumkvöðla gen í framtíðinni til útlanda… Vinur minn frá Hollandi spurði mig hvort við værum í Afríku þegar ég sagði honum að nú ættu erlend fyrirtæki í Hitaveitu Suðurnesja og að það væri flokkur á þingi sem væri að berjast fyrir því að erlendir fjárfestar gætu keypt hluta af sjávarauðlind Íslendinga. Við Íslendingar erum rík þjóð og höfum í krafti fámennis tækifæri á að skapa sjálfbært ríkt samfélag sem byggir á nýsköpun. Við Íslendingar höfum orkuna, vatnið og matinn en þessir þættir eru grundvöllur búsetu hvar sem á er litið. Við höfum orkuna, við höfum vatnið og við höfum matinn.Við Íslendingar þurfum einnig að láta okkur skiljast, að við megum ekki fremur en aðrar þjóðir ætla, að við getum til lengdar vænst mikils góðs af nokkurri þjóð, umfram það, sem er í réttu hlutfalli við þá þýðingu, sem við höfum fyrir hagsmuni hennar sjálfrar. Þetta er lögmál lífsins. Eftir því skulum við hegða okkur, m.a. vegna þess, að það er frumskilyrðið til að eignast þá vináttu og virðingu annarra þjóða, sem getur, þegar mest á ríður, verið verðmætari en nokkrir fjársjóðir. Það er ljóst að Evrópubúar almennt eru orðnir mjög þreyttir á flóði innflytjenda sem hefur farið eins og eldur í sinu með öllum þeim göllum sem því fylgir. Auðvitað eiga þjóðir að senda útlenda glæpamenn umsvifalaust úr landi. Það eigum við Íslendingar að gera, en ekki vera að halda þessu liði uppi á kostnað skattborgarana. En íslensk yfirvöld og stjórnmálamenn eru haldin hættulegum pólitískum rétttrúnaði og getur það á endanum og er nú þegar líklega búið að kosta okkur öryggið og friðinn sem hefur einkennt íslenskt samfélag.Íslensk náttúra er yndisleg. Hún er meðal við alls kyns kvillum, þunglyndi, depurð, stressi og hverju öðru sem kann að herja á mann. Hún er ópíum nútímamannsins sem þeytist um til að uppfylla drauminn um veraldleg gæði. Nú í dag hefur menning Íslands þróast út í það að vera sambland af íslenskri, pólskri og tælenskri menningu. Maður er byrjaður að geta keypt pólskan og tælenskan hátíðarmat úti í stórmörkuðum, ásamt því að það er auglýst á ensku og pólsku í fjölmiðlum. Pólskur matur er að stíga sín fyrstu skref inn í íslenska framleiðslu. Ég veit ekki hvað er í gangi, en þetta er alveg út í hött. Við eigum ekki að þurfa að aðlagast þeirra menningu, heldur eiga þau að aðlagast okkar menningu. Við eigum ekki að breyta okkur menningu fyrir þau, heldur eiga þau bara að bíta í það súra epli að þurfa að taka upp okkar menningarhætti, t.d. að læra íslensku. Til þeirra sem skilja munin á glæpaútlending og heiðarlegum útlending og eru að misskilja mína bjöguðu íslensku eitthvað vil ég segja þetta: ÉG LÉT LÖGREGLU VITA FYRIR 2 ÁRUM SÍÐAN AÐ DÓPSALAR FRÁ AUSTANTJALDSLÖNDUM VÆRU LABBANDI ONÍ REYKJAVÍK Í ARMANI JAKKA FÖTUM! Það er ekki hægt að reka þá úr landi því þeir eiga nóg af peningum og eru allir með hrein sakavottorð. Og svona er það líka í öllum hinum Norðurlöndunum. Þeir eru ekki að vinna í Kárahnjúkum eða að vinna í Reykjavík við að skúra gólf! Þeir eru miklu hættulegri en einn og einn morðingi, nauðgari eða barnaníðingar samnalagðir.

Textinn hér að ofan er sambræðingur úr ýmsum bloggfærslum og fleiru.

Svaraðu kallinu!