Mugison og gráðugir gyðingar
Á föstudagskvöldið var ég staddur á Næsta bar þegar þekktur menningarmógúll íslenskur kallar mig yfir til sín. Ég geng að borðinu þar sem hún sat og heilsa. Hún horfir á mig skælbrosandi og ægilega glöð og spyr: „Er það ekki Mugison sjálfur?“
Svo er Hirsi-Ali víst að skrifa barnabók sem heitir Adam og Eva. Hún fjallar um Adam, sem er sonur múslima (að því stóð í mogganum - og væntanlega ekki múslimi sjálfur) og múslimarnir foreldrar hans berja hann og misþyrma. Eva er dóttir ágjarnra gyðinga. Fjallar bókin um vinskap þeirra. Sagðist Hirsi-Ali telja að bókin myndi verða umdeild, eins og önnur hennar verk, en maður þyrfti að ögra til að koma af stað opinni umræðu.
Það var nú það. Enda löngu kominn tími á að einhver opni á þá umræðu að múslimar séu ofbeldisfullir ofstopamenn sem þyrma ekki einu sinni eigin börnum og gyðingar gráðug svín. Sérstaklega hefur verið hljótt um þetta síðasttalda síðustu 60 árin eða svo. Enda má víst ekkert segja í þessu samfélagi lengur. En Hirsi-Ali lætur sko ekki slíkt stoppa sig. Hún lætur ekki hugsanafasistana segja henni hvað henni má og má ekki finnast, og tekur ekki þátt í badminton-leik rasista og öfgasinnaðra fjölmenningarsinna, svo vitnað sé í borgarskáldið Ágúst Borgþór. Þar fer sko kona sem þorir að hafa skoðanir.
June 7th, 2008 at 7:56 am
Ertu til í að ljóstra því upp hver þessi menningarmógúll er?