Brandarablandarar IV: Vitnað í Ngin Tom

Fjórða ljóðið til að birtast úr hinni smásmjúgandi rafbók Brandarablöndurum, er Vitnað í Ngin Tom. Ljóðið er unnið upp úr módernísku meistaraverki Steins Steinarr, Tímanum og vatninu. Ljóðið kyrjar Eiríkur Örn Norðdahl og hefur þriðjungsnafni hans Jón Örn Loðmfjörð spunnið við það minimalískar sjónmyndir sem hann segir „lágvært muldur þrætt í tónvæna síframúrstefnu“.

Smellið, þrýstið, sláið og/eða ýtið hér til að sjá ljóðið.

Comments are closed.