SVONA „TORREK“
1.
Sverð og skjöldur
Þú ert Íslandi til sóma,
Egill Skallagrímsson!
Gleymdu ekki 11. september,
Hallgerður Langbrók!
Stökkbreyttu mér,
Gunnar á Hlíðarenda!
Þetta vor er á kostnað gróðurhúsaáhrifanna,
Þormóður Kolbrúnarskáld!
Það eru eiturlyf í Æsufelli,
Snorri Sturluson!
Ég get ekki lengur talað íslensku,
Leifur Eiríksson!
Hamstrarnir eru komnir með niðurgang,
Sæmundur Fróði!
Það ískrar í gangráði yðar,
Melkorka Mýrkjartansdóttir!
Konum er nauðgað í Íslendingasögunum,
Guðrún Ósvífursdóttir!
Múhameð hefur tekið gönguskíðastafina mína,
Hallgrímur Pétursson!
Kókoshnetur eru engar fallbyssukúlur,
Gunnlaugur Ormstunga!
2.
Róandi
Við vorkennum honum ekki neitt
að vera dæmdur ofurölvi
fyrir að berja bruggmeistara
á róandi á gamlárskvöld.
Að sigra sjálfan sig og vera frjáls
skoðaður á gildum númerum
stífrakaður með uppsett hár
á róandi á gamlárskvöld.
Sjá Fellahverfi: Útlendingar í neyslu
rauðeygir voteygir skrökva
að foreldrum sínum á tveimur tungumálum
á róandi á gamlárskvöld.
3.
Hversu lengi er hægt að berja dauðan Íslending til vinnu?
Orðasamböndin að berja samlanda sína, eða að berja Íslendinga, eru notuð um tvennt. Í fyrsta lagi er merkingin ‘afsaka eða breiða yfir galla einhvers’, til dæmis „Móðirin reyndi alltaf að berja Íslendinga þegar sonur hennar átti í hlut.” Í öðru lagi er merkingin ‘reyna að gera gott úr einhverju’, til dæmis „Stjórn félagsins reyndi að berja samlanda sína þegar hún kynnti skýrsluna.”
Langar að fá að spjalla við mann sem kann að hugsa á fron Grízku!