Ný myndbönd og uppfærslur
Hef sett inn ný myndbönd frá Brussel og New York, auk þess sem ég hef lagað ljóðmyndasvæðið á síðunni. Þá má lesa ferðasögur frá Brussel og New York respektíft hér og hér. Hægt er að skoða ljóðmyndasvæðið hér, myndbönd hér og konkret hér. Næst á dagskrá er að uppfæra hljóðaljóðaspilarann – og svo styttist óðum í að fyrstu ljóðin í netljóðabókinni Brandarablandarar fari að birtast, en hún er útfærsla á annarri bók með ekki ólíkt heiti og sprettur úr grösugum bakgarði okkars Jóns Arnar Loðmfjörð, hins íðilfæra stafræna ljóðskálds.