Finnlandsarmur Nýhil sökkvir húsi

Um langt árabil, mikið lengur en ég hef verið hérna, hefur verið starfrækt Nýhil-útibú í Helsinki. Útibúið snýst og hrærist í kringum og nærist á Halldóri Arnari Úlfarssyni, myndlistarmanni, nærbuxnaþefara og spíttmaníusjúklingi - sem hefur verið búsettur hér frá árinu 1999 (með stuttum hléum) og tók master frá tveimur listaháskólum hér í bæ. Fyrir fáeinum vikum yfirgaf Halldór mig og Finnland, eftir að hafa gefið út heitsvarna yfirlýsingu þess efnis að hann væri hættur að hugsa, og fór til Íslands að byggja hús.
Í dag sökkti Halldór húsinu sínu í tjörnina í Reykjavík.