Brandarablandarar III: Kardinálinn var svo áhugasamur um Norrænar bókmenntir

Þriðja ljóðið til að birtast úr hinni nýju rafbók EÖN og Jóns Arnar Loðmfjörð, Brandarablandarar, er Kardinálinn var svo áhugasamur um Norrænar bókmenntir - og er þar um að ræða fyrsta ljóð fyrirmyndarbókarinnar Blandarabrandarar. Við framleiðslu þess hljóðaljóðs er fylgir dreymandi myndrænni flórritun Jóns Arnars, er notast við upplestur hins kunna stórleikara Viðars Eggertssonar, sem fenginn er úr útvarpsþættinum Víðsjá. Í sama þætti sagði bókmenntafræðingurinn og framúrstefnuspekúlantinn Benedikt Hjartarson meðal annars um þetta ljóð:

„Tónninn er sjálfbirgingslegur og aðgangsharður, allt að því frekjulegur á köflum og honum er vísvitandi ætlað að ögra a.m.k. hluta lesendahópsins. Stórkarlalegar yfirlýsingar á borð við þær að nútíminn hafi nú loks hafið innreið sína í norrænar bókmenntir hljóma einnig kunnuglega. Hér má greina enduróm af þeim herskáu yfirlýsingum sem fluttar voru og gefnar út af hópum rithöfunda og listamanna á fyrstu áratugum 20. aldar, þegar vígreifar framúrstefnuhreyfingar sögðu hefðarhyggju og ríkjandi menningu stríð á hendur um leið og þær boðuðu komu nýrrar aldar í list og skáldskap. Að baki fullyrðingunni í ljóði Eiríks býr í raun aldargömul þrá eftir nýju og fersku ljóðmáli, sem geti gert manninum kleift að brjótast úr viðjum hefðbundins tungumáls, þrá eftir ljóðmáli sem geri fært að henda reiður á glundroða nútímans og bregðast kröftuglega við honum.“

Smellið hér til að bera herlegheitin augum.


One Response to “Brandarablandarar III: Kardinálinn var svo áhugasamur um Norrænar bókmenntir”

  1. Eiríkur Örn Norðdahl » Brandarablandarar I-III Says:

    […] Kardinálinn var svo áhugasamur um Norrænar bókmenntir. […]