Brandarablandarar II: Besta orðið mitt

Annað ljóðið til að birtast úr rafbókinni Brandarablandarar er Besta orðið mitt. Allra glöggustu ljóðaunnendur ættu að kannast við titilinn sem er stolinn frá samnefndu ljóði Dags Sigurðarsonar, en það hefst svo:
ég
besta orðið mitt
égégégégégég
égégég
Ljóðið var unnið með því að klippa & líma 1.000 blaðsíður af texta af heimasíðunni ljóð.is, sem er opinn gagnagrunnur fyrir ljóðskáld að geyma verk sín á netinu. Þvínæst var beitt fítus í Windows Word er nefnist Auto-Summarize, en með honum má gera vélræna útdrætti úr texta. Vélin var stillt á 0,1%, eða eitt prómill, svo úr varð ein síða af ljóða-essens.
Um verkið sagði bókmenntafræðingurinn Anna Björk Einarsdóttir m.a.: „Því má bæta við túlkunina á ljóðinu „Besta orðið mitt“ að það fangi stöðu einstaklingsins á póstmódernískum tímum. Hver og ein setning ljóðsins hlýtur að koma frá ólíkum höfundum, forritið tekur þær algengustu og raðar þeim upp. Við sjáum að flestir eru að semja eins ljóð. Þrátt fyrir að einstaklingnum og einstaklingsbundnum tilfinningum hans sé gert hátt undir höfði er vægi þessara einstaklinga álíka mikið og vægi lambs í hjörð, engin leið er að greina á milli þeirra.”
Forritun Loðmfjarðar dansar í kringum ljóð.is þemað og má nota ljóðið til þess að garfa í þeim gagnagrunni. Smellið hér fyrir húllumhæið.