Þessar konur kunna að þjóna öðrum

Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir í málgagni Frjálslyndra á Akranesi, um írösku mæðurnar sem Frjálslyndir treysta sér ekki til að taka á móti.

Það er auðvitað hrikalegt fyrir umræðuna að það sé fyrst að koma fram núna að þessar konur kunni að þjóna öðrum. Hvers vegna hefur Rauði krossinn þagað um þetta, og hvers eðlis er þessi þjónustukunnátta þeirra? Eru þær með þjónsmenntun? Kunna þær svæðanudd og heilun? Þessu þarf að svara, og það ekki seinna en í gær!

Annars sýnist mér allur annar texti í blaðinu vera skrifaður af Magnúsi Þór sjálfum, sem auk þess er ritstjóri og ábyrgðarmaður, forsíðumódel og eini auglýsandinn í blaðinu (hann auglýsir bloggið sitt undir kjörorðinu “brotabrot úr huganum”). Einn textinn er reyndar stuðningsyfirlýsing við Magnús, en ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni að hann hafi skrifað hann sjálfur. Hann er í það minnsta búinn að skrifa undir stuðningsyfirlýsinguna við sjálfan sig, efstur á blaði, nema hvað.

Leave a Comment