Þeir eru að berja útlendinga

Finnar unnu Svía 4-0. Sem þýddi að við hjónin vorum ekki myrt með brýndu felgujárni á heimleiðinni í nótt. Það er alveg í ánægjulegri kantinum. Frúnni var líka létt - þó hún sé sænsk - enda Svíar heimsins umburðarlyndustu, og geta vel unað öðrum að vinna. Reyndar var eitthvað svona væl í Dagens Nyheter, þar sem sagt var að þó Svíarnir hefðu verið slappir hefðu Finnarnir verið það líka. Sem er auðvitað þvæla. 4-0 er bara rótburst, og engar vöflur.

Magnús Þór er einn heima þegar það er bankað. Á tröppunum stendur fátækt fólk og það er klætt á annan hátt en Magnús á að venjast. Konurnar vafðar í kúgunartæki og karlarnir með handklæði á höfðinu. Alveg eins og bjánar. Það hefur ekki fengið að borða lengi, og ofaná húsum nágrannanna eru leyniskyttur sem reyna að skjóta aumingjans fólkið til ólífis. Fólkið er fátækt en því fylgir kunningi Magnúsar, sem er sterkefnaður, og segist vilja borga með þeim ef Magnús geti veitt þeim húsaskjól og gefið þeim eitthvað að borða. Magnúsi er lítið gefið um útlenskt fólk og byrjar því að malda í móinn. Það sé nú ekki nema eitt rúm á heimilinu og mjólkin hafi rétt í þessu verið að klárast og eiginlega ekki hægt að vera skjótast eftir meiri enda að byrja rigning, og í ofanálag þá eigi hann nú von á gestum sem munu mæta svangir og hreinlega ekki hægt að metta allt þetta fólk svo vel sé - það sé nú ekki sjáandi framan í þessar konur og karlarnir allir eitthvað ógnandi á svip - og hver kunninginn haldi að hann sé að mæta bara svona með einhverja aumingja á tröppurnar hjá honum þegar hann á nóg með sitt, hefði ekki verið nær að láta hann vita með nokkurra daga fyrirvara að veslingarnir ætluðu að láta skjóta sig þarna fyrir utan svo hann hefði getað gert ráðstafanir, mælt sér mót, sótt um styrki, hellt upp á kaffi, keypt sér skothelt vesti, lesið Kóraninn, samið um greiðslur, skyldur og ábyrgð og þessi Rauði kross er nú bara einhver fasistastofnun sem er að reyna að búa sér til vinnu heima hjá honum - þeir stórgræða allir á innflutningi á stríðshrjáðum töturum - „þetta er nú bara eins og að vera kominn á síldarævintýri fyrir þig, nei, hundskastu burt með allt þitt hyski og reyndu að ljúga þessari þvælu þinni að einhverjum barnalegri.“

Síðan skellir hann hurðinni og fólkið er skotið á tröppunum hjá honum.

Rétt upp hönd annars sem er stoltur af því þegar Íslendingar sendu gyðingana aftur „heim til sín“ til Þýskalands rétt fyrir stríð.

Leave a Comment