Við ósa
Ég er alinn upp í litlum bæ, og frá því ég man eftir mér þekkti ég allar göturnar. Ég varð ekki villtur fyrr en á fullorðinsárum. Aldrei staddur þar sem ég ekki þekkti til nema í félagi við aðra. Ég er ágætur í kortalestri, en annars gersamlega disoríenteraður. Ég geng jafnan um hálfsofandi, með höfuðið fullt af hugsunum um eitthvað allt annað en umhverfi mitt – eða, í öllu falli registrera ég ekki allt sem mörgum öðrum virðist augljóst. Eins og til dæmis að ég hafi beygt eða snúið við. Í hvaða átt er hafið, norður, hótelið mitt?
Ég er skástur í að finna hafið, reyndar. Maður finnur hafið með eyrunum.
Fyrr í dag, á leiðangri mínum um þessa ágætu borg, stóð ég á götuhorni og rýndi í kortið mitt. Ég leit mörgum sinnum upp og las götuheitið á húsinu fyrir framan mig, en fann það ekki á kortinu. Þegar ég hafði staðið svona og horft upp og niður í lengri tíma, leit ég örlítið til vinstri, og áttaði mig á að ég stóð fimm metrum frá útveggnum á risavaxinni dómkirkju.
Hana var auðvelt að finna á kortinu.
Allt gekk vel í gærkvöldi. Las Höpöhöpö Böks reyndar of snemma – ég var svo hás á eftir að ég kláraði mig ekki alveg á síðustu tveimur ljóðunum. Meðal þeirra sem komu fram í gær voru Claus Beck-Nielsen Memorial, með samnefndum forsprakka sem þekktur er úr Das Beckwerk. Í þeirri hljómsveit er bassaleikari Nikolaj Wolf, sem ég spjallaði lengi við í gærkvöldi. Hann stúderaði í konservatoríunni í Kaupmannahöfn, en tók skiptinemaár í Reykjavík – og mun góðkunningi Samma í Jagúar og Eiríks Orra í múm.
Nema hvað – bandið er bjútífúl. Ef þið smellið á myspace-hlekkinn hér að ofan, þá mæli ég með laginu Mullahocracy. Textinn í því er m.a. fenginn frá Donald Rumsfeld (“the known knowns etc.”
Í gærkvöldi las ég án undirleiks. Í kvöld mun ég treysta á tölvuna – við skulum vona að hún bregðist mér ekki. Þetta er þungur hugbúnaður og hann á það til að flæða meira eins og síróp en gvendarbrunnsvatn.
Nú ætla ég í sturtu, skola af mér þynnkuna, og síðan í hljóðprufu.
Meðal þeirra sem koma fram í kvöld er hinn hollenski Jaap Blonk, sem er hálfgert goð. Hér er hann á Youtube að flytja brot úr úrsónötu Kurt Schwitters.