Smekkleysi að eilífu

Allur í skýjunum eftir yndislega ferð til New York. Er að undirbúa mig fyrir ferð til Brussel á morgun þar sem ég tek þátt í Badtaste4Ever hátíðinni. Hún verður haldin í Paleis voor Schone Kunsten við Ravensteinstraat 23, miðvikudaginn 30. apríl, klukkan 18.30. Frekari upplýsingar hérna og hérna.

Ég er búinn að setja inn eitt myndband frá FlarfFest á síðuna, og er hægt að finna það undir Ljóð í mynd hér að ofan. Það er von á að minnsta kosti einu í viðbót.

Þá var Kennara með köldu blóði sýnt í Kiljunni síðastliðinn miðvikudag. Hér er hægt að sjá ljóðið og hér Kiljuna.

Comments are closed.