Rauðavatn
Ég held að lögreglan sé ekki endilega neitt harðari en hún hefur verið.
Andstæðingarnir - þ.e. vörubílstjórarnir - eru hins vegar harðari en verið hefur. Það er ekki jafn auðvelt að snúa niður vörubílstjóra, svona almennt, og ungling. Þá hafa unglingarnir - þ.e. Saving Iceland og aðrir tengdir Aftöku - verið skólaðir í non-violence. Þeir láta draga sig í burtu, en eru ekki að reyna að slá lögreglumennina í rot.
Lögreglan hefur hins vegar alltaf hagað sér eins illa og henni hefur þótt efni standa til. Og hún mun halda því áfram. Enda er henni gert að verja ákveðið skipulag, og þegar því skipulagi er raskað bregst hún við með látum.
Mér finnst það ekki gott. En það finnst mörgum.