Íslensku þýðingaverðlaunin
Ég var tilnefndur til íslensku þýðingaverðlaunanna, fyrir Móðurlausa Brooklyn eftir Jonathan Lethem. Það gleður mig. Aðrir tilnefndir eru:
Jón Kalman Stefánsson (Loftskeytamaður eftir Knut Hamsun)
Friðrik Rafnsson (Brandarinn eftir Milan Kundera)
Sigrún K. Magnúsdóttir (Módelið eftir Lars Saabye Christensen)
Sigurður Pálsson (Skíðaferðin eftir Emmanuel Carrere)
Tilkynnt verður um sigurvegara þann 23. apríl á Gljúfrasteini.
Bæjarins besta segir frá þessu hér.