Dagur núll

Ef þú gætir sagt hvað sem er, og verið viss um að í þér myndi heyrast, hvað myndirðu segja?

Þú myndir kannski segja: „Það brakar í gráum skýjunum.“ Síðan myndirðu halla þér aftur í stólnum, líta út um gluggann, og sannfærast um að jú, þarna hittirðu naglann á höfuðið. Nákvæmlega svona er þetta. Svo brakar í skýjunum og einhver hellir upp á te til að fagna skarpskyggni þinni.

Að síðustu leysast skýin í sundur og áður en þú veist af logar allt í illdeilum. Athugasemdakerfin ganga sundur og saman í hamaganginum – líkt og skjárinn muni klofna og gátt opnast til helvítis – gapuxar skiptast á svívirðingum þar til líður yfir alla af ergelsi.

Í hvert skipti sem einhver rífst á internetinu fær engill vængi. Þegar rifrildið berst honum til eyrna lemur hann sjálfan sig til ólífis með vængjunum.

Árið er núll. Það brakar í gráum skýjunum.

Tags:

allt þetta fólk bregst við “Dagur núll”

  1. Til hamingju með stórglæsilega síðu. Ég var einmitt á leiðinni með að taka mína í bakaríið.

    #2
  2. Bryndis

    Heyrðu… er commentið mitt sem átti að vekja upp mikil læti á fjallabaksleiðinni þá bara farið á vit forfeðra sinna… eins og broddgölturinn á Nýja Sjálandi?

    ahm, til hamingju með vefinn. Haukur sagði: shit, flott og úff, þegar ég sagði honum að opna hann.

    #3
  3. HMH

    Já hver gerir svona síður? Ég hef aldrei séð annað eins!

    #4
  4. Ég var að fara að saka þig um svívirðilegar sögufalsanir en svo er nýja síðan svo falleg að ég ætla barasta að sleppa því. Svona er maður grunnhygginn útlitsdýrkandi þegar öllu er á botninn hvolft …

    #5

Svaraðu kallinu!