Blandarabrandarar (Kistudómur)

Kokteilbók Eiríks Arnar Norðdahl er fjórða ljóðabókin í ritröðinni en Blandarabrandarar (die Mixer Witze) er kannski fyrsta bók sinnar tegundar hérlendis. Eiríkur Örn hefur áður gefið út a.m.k. þrjár ljóðabækur og eina skáldsögu auk þess að fást við þýðingar og útgáfustörf. Blandarabrandarar inniheldur endurunnin orð í nýju samhengi, ljóðin eru gerð úr lánsorðum og setningum og vísunum en eru misbitastæð eða misbragðmikil.

hvort rétt sé að leika Guð í þessu máli

I

hvort fóstur sé með Downs-heilkenni
og hvort ekki sé verjandi að mæta og sjá liðið
orma sig út úr þeirri pælingu

hvort æskilegt sé að fá mat trúnaðarlæknis
og hvort sé ekki betra þá að vera á bótum

hvort rétt sé að fjölmiðlar birti hitt og þetta
og hvort sé verið að lýsa því hvernig hlutirnir
sjálfir séu

[…] (20)

Þessi höfundargjörð að henda tungumálinu í blandarann og týna svo ljóð upp úr gumsinu sýnir fram á fáránleikann í tjáningunni en verður útreiknanleg þegar líður á síðurnar. Höfundurinn fæst við orð en áherslan á merkinguna týnist í þessum óvæntu tengingum eða í það minnsta er örðugt fyrir lesandann að fóta sig í þessu sporti, leikurinn er kunnuglegur en lesandinn þekkir ekki reglurnar. Það er gott að vera fullur af ljóðum en maður verður ekki fullur af þessum kokteil þó það sé gaman að lesa bókina. Það er kannski ekki yfirlýst markmið ljóðalesturs að það eigi að vera gaman en titill þessa verks gefur það samt til kynna. Eiríkur hendir gaman að ljóðum og tungumálinu um leið. Reyndar klikkir hann út með tilvitnuninni á bókarkápunni: „Ágætis tilraunabókmennt en skortir allt fagurfræðilegt inntak“ og leggur gagnrýnandanum þar með orð í munn.

Í eftirmála bókarinnar er skýringuna að finna á þessari framkvæmd. Baráttan við hugmyndina um hið skáldlega, við textann og fánýtið. Við orðin og ljóðin. Þessi textalega bóndabeygja Eiríks er virðingarverð tilraun, ég vildi bara að hún hefði eitthvað meira að segja.

Kristrún Heiða Hauksdóttir

Kistan – desember, 2005.

Textinn hér að ofan er tekinn úr lengri dómi sem fjallaði um fyrstu fjórar bækurnar í seríunni Norrænar bókmenntir.

Tags:

Svaraðu kallinu!