Ljóðahátíðin í Osló

Ljóðahátíðin í Osló var skríkjandi skemmtileg. Eins og smástelpur og heimsendir. Hitti gamla vini – Kenny Goldsmith, Derek Beaulieu, Paal Bjelke, Lone Hörslev, Martin Glaz Serup, Mariann Enge – og kynntist skáldum sem ég hef verið að lesa – Ulf Karl Olov Nilsson og Monica Aasprong – auk skálda sem ég kannaðist ekki við fyrir, eins og Öyvind Berg og Niklas Söderberg – og kvikmyndaskáldunum Simon Morris og Eric Engelbracht. Sá síðarnefndi er innviklaður í Lyrikline vefsíðuna, og býr rétt hjá þeim stað er ég bjó sjálfur í Berlín 2002-2003.

Áðurnefndur Ulf tróð upp með hljómsveitinni/Kraftwerk nördunum Njurmännen – og var það sjó, í sem stystu máli, fantastískt. Á leiðinni til baka las ég nýjustu bókina hans, Synopsis, sem er sömuleiðis mögnuð. Í Osló festi ég líka kaup á bókinni Bli verden eftir Gunnar Wærness, sem var á ljóðahátíð Nýhils í fyrra. Sú bók er engu lík – en svo furðulega vildi til að rétt þegar ég var búinn að kaupa hana sýndi Paal Bjelke mér nýjasta Klassekampen þar sem bókin var sögð algerlega misheppnuð. Stundum stend ég bara á gati. Bli verden er óhugnanlega falleg, og ég skil ekki hvað þarf að vanta í manneskjur til þess að ná henni ekki.

Þá eignaðist ég Shift & Switch – new canadian poetryFlatland eftir Derek Beaulieu – Soldatmarkedet eftir Monicu Aasprong – Audiatur katalóginn fyrir 2007 – Thumbscrews eftir Natalie Zina Walschots – og þegar ég kom heim beið mín Söngur steinasafnarans eftir Sjón og Mugiboogie Mugisons.

Um Söng steinasafnarans er fjallað í nýjasta þætti Garðskálans – Youtube þætti Arngríms Vídalín og Jóns Arnar Loðmfjörð.

Frú mín góð tók upplesturinn minn í Osló á vídeó.

Hér má svo sjá fleiri búta.

Tags:

Svaraðu kallinu!