Ljóð og kynskipting skálda
Ljóð eru heitt stöff, segir Silja í formála nýja tímaritsins, og ekki ætlum við að gera hana að gjalti.
Grein Þorleifs, sem mér var lofað að myndi fylla mig heilagri vandlætingu, snerti ekki hið minnsta við mér. Hún er heldur ekki neitt neitt. Samantekt yfir þær bækur sem hafa ratað inn á borð til hans, væntanlega, bestsellera og margstimplað literatí. Ég hefði ekki þurft að lesa hana. Hún var alveg eins og ég hélt hún yrði.
“Karlkyns vængur Nýhils hefur verið meira áberandi í bókmenntaumræðu á Íslandi síðastliðin misseri, á meðan kvenskáldin láta frekar verkin tala.” – Emil Hjörvar Petersen – “Mannfugl og fílabeinsturn: Konan í undraveröld”
Grein Emils um bækur Stínu og Þórdísar… hvað er með þessa eilífu kynjaskiptingu Nýhils? Áttar sig enginn á því hvað þetta er niðrandi fyrir fólkið beggja vegna línunnar? Og nær enn eilífari samanpörun á Þórdísi og Stínu? Af hverju eru þær í boxinu “kvenskáld”, eða “kvenskáld Nýhils”? Og hvað á Emil við með að segja þær láta verkin tala – láta karlskáldin í Nýhil ekki verkin tala? Láta þeir kannski verkin þagna? Snýst þetta um hverjir eru í fjölmiðlum? Er Ófeigur s.s. oftar í blaðinu en Þórdís? Eða skrif um ljóðlist – hefur Stína ekki skrifað Yfirlýsingu um ljóðlist? Hefur Þórdís ekki tjáð sig um fagurfræði í viðtölum? – Svo mikið er víst að bækur Stínu og Þórdísar, í seríunni N.B., eru langt í frá þær sem hafa fengið minnsta athygli “í bókmenntaumræðunni”.
Eða er hann að segja að strákarnir í Nýhil séu latir?
Eða var þetta bara glötuð tilraun til að senda pillu – Nykur til Nýhils – er gagnrýnandi bara súr að hafa verið kallaður þríburi?
Svo voru bækurnar í seríunni alls ekki átta, heldur níu.
Blandarabrandarar – EÖN
Og svo kom nóttin – Þórdís Björnsdóttir
Húðlit auðnin – Kristín Eiríksdóttir
Rispa Jeppa – Haukur Már Helgason
Litli kall strikes again – Steinar Bragi
Gleði & Glötun – Óttar Martin Norðfjörð
Roði – Ófeigur Sigurðsson
Gamall þrjótur, nýir tímar – Örvar Þóreyjarson Smárason
Eðalog – Valur Brynjar Antonsson
—
Að öðru skyldu. Þýðingasafnið 131.839 slög með bilum er, að heita má, komið út. Hægt er að skoða efnisyfirlit hér að neðan. Smellið hér til að panta, og hér til að lesa formálann.
Charles Bernstein
Þakka þér fyrir að þakka mér
Jon Paul Fiorentino
Sonnetta R2-D2
Straff
Leiðindafólk helst í hendur
Susana Gardner
úr Pár: ASTER ASTERIAS
Oscar Rossi
Fjögur ljóð úr Bréf til lögreglunnar
Kirby Olson
State of the union
Un cercle s’amuse
Leevi Lehto
Ananke: Pantún
Sharon Mesmer
Óþolandi sykursýkistussa
Jan Hjort
Já gott kvöld
Jesse Ball
Göng inni í ofninum
Markku Paasonen
Haganes
Jack Kerouac
Sjór
Amerískar hækur
Derek Beaulieu
Extispicium
Katie Degentesh
… Endurbyggjum Tvíburaturnana í New York … á pizzunni þinni
Paul Dutton
Ekki til heldur fyrir
Nada Gordon
Gosbrunnur
Paal Bjelke Andersen
Noregur
Danmörk
Finnland
Ísland
Gherardo Bortolotti
aðferðir á lágu plani (105-176)
Daniel Scott Tysdal
Cohen
Iain Bamforth
Ókerfisbundin líffærafræði
Michael Lentz
góður endir, spurning
Anne Waldman
Hvernig sestínan (geisp) virkar
Teemu Manninen
Barn er lítill sívalningur
Mike Topp
EF
Guðdómleg ást
Stella
Kínverskar soðbökur
Fokkaðu þér
Standpína
Ótitlað
Hvernig maður skrifar hæku
Ótitlað
Fin-De-Siecle
Ida Börjel
Ástarsaga
Saga sem á sér trix
Amiri Baraka
Í fúnkheimum
S. Baldrick
Byssukjaftar Þjóðverja
bp Nichol
hinn endi herbergisins
Heildarverkin
Gorg, spæjarasaga
Charles Bukowski
ógæfa á hótelinu á horni Vermont og 3. strætis
Mairead Byrne
STOPP
Mark Truscott
Snjór
John Tranter
Hálfdrættingur í Kensington
Sylvia Legris
úr negatífi garðurinn
Maya Angelou
Tíminn líður
Bruce Andrews
Ljóstu mig, elding!
Haukur Már Helgason
S&S: Frelsandi heimilishvalveiðar
Craig Dworkin
úr Beinagrind minnisins
Shanna Compton
Undir þessari regnhlíf er önnur regnhlíf
Lars Mikael Raattamaa
Ég er Gertrude Stein
Vito Acconci
LESTU ÞETTA ORÐ
K. Silem Mohammad
Djöfladrengur
Myspace er krípí
Frank Bidart
Sekur um ryk
Rita Dahl
Helvíti
damian lopes
ósaga: ágrip
requiem fyrir avant-gardið
Jelaluddin Rumi
Listin sem daður og uppgjöf
Rachel Levitsky
úr Nágranni
Tom Leonard
Fjögur konseptljóð
Hans Magnus Enzensberger
Fyrir lesanda sem stefnir að stúdentsprófi
Ian Hamilton Finlay
Fyrsta súprematíska standljóðið
Ulf Karl Olov Nilsson
ÁN TITILS
Caroline Bergvall
Meiri gæludýr
Christian Bök
úr Kristallafræðinni
e. e. cummings
Vísunda-Villi er
Saul Williams
úr , sagði haglabyssan við hausinn
a.rawlings
úr Víður lúr fyrir fiðrildafræðinga
Stephen Cain
/Eponymus
Jeff Derksen
Rykkur
Linh Dinh
Fjárfestingarráðgjöf
Fátækur og vitlaus
Nico Vassilakis
ritgerðarkrukkan
Martin Glaz Serup
úr 4: ljóð
Malte Persson
úr Apolloprojektet
Anna Hallberg
velferðarfulltrúarnir