Álfadrottningin e. Eva-Stina Byggmästar

Álfadrottningin (eða Fljótadrottningin; Älvdrottningen á sænsku) er ellefta ljóðabók hinna finnlands-sænsku Evu-Stinu Byggmästar (f. 1967) á 21 árs ferli, en hún gaf út sína fyrstu bók aðeins 19 ára gömul árið 1986. Það fyrsta sem maður tekur eftir við bókina, sem er í sjö hlutum, er kápan. Þeir segja það sé flónska að dæma bók eftir kápunni, en í þessu tilfelli er það líklega óhætt: Hin marglitu, sakleysislega teiknuðu smáblóm sem prýða kápuna eiga sér fullkomin samhljóm í kátínuspírandi innihaldinu.

Gleðin er allsráðandi í Álfadrottningunni, sem er eins konar lesbískur ástaróður smekkfullur af leikandi, ástríðufullu náttúrumyndmáli: „Ég sagði sweethearts ég sagði rósir / ég sagði sweethearts og ég sagði rósirnar / það er svo bjart hérna inni það hljóta að vera rósirnar […] elskan augu þín eru rósir og ég sagði / munnur þinn … rós ó, leyf mér að kyssa hann aftur / og ég sagði þú ert stelpa og ég er rós / ég sagði þú ert rós og ég er stelpa“.

Byggmästar nýtir sér duglega möguleikana til framsetningar textans – hann á það til að stökkva frá akkeri spássíunnar og fljóta út á miðjar síður, orð og orðhlutar birtast í hástöfum eins og af æpandi kátínu, það teygist á sérhljóðum (ekki síst hinu fallega sænska å-i), orð birtast gisin og slangur, enska og talmál lita bókina blómstrandi frá upphafi til enda.

Líkt og Paasonen vísar til hinnar mennsku náttúru með því að benda á hafið, borgina og klóakið, er gróður skógarins, blómin og grænildin náttúra mannsins í Álfadrottningu Byggmästar – náttúra einnar konu til annarrar. Eins og góðra ástarljóða er siður öðlast bókin þokka sinn af nær algeru hamsleysi, fullkominni kátínu og leikgleði sem smitar jafnvel forpokuðustu geðvonskupunga.

Birtist í Lesbókinni árið 2007.

Comments are closed.