Gertrude Stein

Eru útreikningar

….Eru útreikningar. Að hluta eru útreikningar. Það eru að hluta, það eru útreikningar að hluta.
….Eru útreikningar.
….Að hluta.
….Annað dæmi.
….Eru útreikningar.
….Að hluta.
….Eins og eru útreikningar. Að hluta.
….Sem hlutar.
….Undir.
….Sem hlutaðir.
….Undir.
….Þetta gerir.
….Ómótstæðilegt.
….Mótstaðið.
….Þetta gerir ómótstæðilegt mótstaðið. Mótstaðið eins og það gerir.
….Fyrstur til að fá eftirtekt.
….Annar fær eftirtækt.
….Hinn fyrsti til að fá eftirtekt.
….Eru útreikningar, ómótstæðilegir, hlutar.
….Eru útreikningar ómótstæðilegir mótstaðnir hlutar.
….Eru útreikningar ómótstæðilegir hlutaðir.
….Æ er sagt æ er séð, sem æ er séð, æ er sagt.
….Eftirtektarvert.
….Útreikningar.
….Eru útreikningar, hlutar.
….Hneigja sig og ef búnir.
….Eru útreikningar hlutar.
….Æ er sagt.
….Eru útreikningar ef búnir, hneigja sig ef búnir eru útreikningar æ er sagt, er útreikningar hlutaðir.
….Ekki fjórir.
….Skynleysi í skynleysi sakleysi hvers ef ekki og hvað um dálæti. Í skynleysi sakleysi í skynleysi og hvað í dálæti og ekki, í skynleysi sakleysi í skynleysi skynleysi hvað, í skynleysi og dálæti, og í skynleysi og dálæti og ekki í skynleysi og dálæti og ekki, skynleysi í skynleysi sakleysi og dálæti.
….Alltílagi.
….Heldurðu ekki að það færi vel í útreikningi.
….Ef og ætla og ætla, ef og að mæta, ef og ef að mæta ef að mæta ef og ætla, eða og nærri hið sama, tveir fram og fjórir aftur, tveir fram og fjórir aftur, tveir fram sem tveir, og tveir, og tveir fram og að verða, og hafa það eða nálir ef ske kynni að.
….Ég er ekki viss um að mér líki þessi það eru útreikningar dag þennan.
….Ef í því einsog ef í því sem einsog hefur ef í því einsog það hefur ef í því sem það hefur verið, ef það hefur verið einsog ef það hefði haft einsog ef það hefði haft það einsog það var, einsog það væri ef það væri að verða fangað, ef það væri á þennan og hinn veginn klárt og kvitt, lýsið því yfir. Að lýsa því yfir.
….Hægt og sígandi í talningu einsog hægt og sígandi er talið. Ef það eru fleiri.
….Sjáið nú til.
….Skýr skýr skýr. Að vera skýr, það er skýrt það er gert mjög skýrt, á skýran hátt. Og útreikningur og meira en það, og meira eða það. Vínber og súkkulaði. Nefnið það dafna að dafna að blómstra, nefnið það einsog blómstra eða dafna eða nefnið það einsog dafna einsog blómstra eða blóm.
….Hversu stórt er engið afgirt. Hversu margir eru af höttum og höttum, hversu margar eru af kúm og kúm hversu margar eru hversu margar eru eru þær margar og hversu margar og hversu margar og hver segir svo, svo og svo.
….Endurtakið það nú. Get ég endurtekið það. Ég get endurtekið það. Sem ég endurtek það, sem ég endurtek það, þeir og þeir gera, gera og gera gert, gera og gera líka, gera og gera gert. Einsog við skot, og einsog við skot og einsog og sem einsog við skot, skot og hvaðumþað þeir og í-dag mjög duglega nærri búnir.
….Ég hafði enga ætlun, það sem það hafði það og það það hafði enga ætlun, Dora Katorza og það hafði enga ætlun það hafði enga ætlun.
….Eða eða eða munu þeir stinga okkur ofaní eða, eða eða eða munu þeir muna þeir vilja þá eða, eða eða eða munu þeir stinga eða munu þeir, þeir munu ekki. Hvað, hrísgrjón, hvaða hrísgrjón eða hvaða perur eða eða hvaða hrísgrjón eða hvaða eða ekki, perur hrísgrjón, munu þeir eða munu þeir ekki. Og hvað ætla þeir. Þeir ætla að halda sig við þetta þeir ætla að halda því eða með þessari ætlan með þessari ætlan ætla þeir að halda því. Eða eða eða þeir ætla að koma með meira.
….Tvöfalt lok og tvöfalt lok. Tvíloka tvöföldu loki. Tvíloka. Tvöfalt lok. Tvíloka. Tvöfalt lok er notað þegar hið eina og tvöfalda lokið er notað ekki fullnotað. Tvöfalda lokið. Tvöfalt lok og tvöfalt lok. Lokið.
….Hrindið henni.
….Nýta hné, nýta hné. Nýta hné nýta hné sjáið mig. Hnýta hné nýta hnýta hné við mig.
….Og það gerði Mike.
….Í fyndni of fyndið, of fyndið fyrir fyndið fyrir fyndið einsogfyndið sem fyndið er fyndið. Er fyndið. Það er fyndið.
….Vera getur verið aftur, vera getur verið aftur. Fyrir þetta fyrir sakir þessarrar endurfjölföldunar.
….Útreikningur eða meir. Hera meyra. Þeir geta ekki gleymt áhugaverðum dögum.
….Næs lítið nýtt lítið nýtt lítið næs lítið næs lítið nýtt lítið þrír. Nýtt lítið næs lítið næs lítið nýtt lítið nýtt lítið nýtt lítið sem þrír. Þrír. Þrír. Síðan í sæti. Síðan setið eins og við að fá sæti. Ég nýlega bar ég bar það burt.
….Hví og hví, hví og hví, alls ekki nándar nærri nógu bergnumin.

Gertrude Stein

Tags: , ,

Svaraðu kallinu!